Stéttin 2009
Efni: Sandur, gangstéttarhellur.
10 metrar
Verk sem sameinar alla mína þætti í myndlist.
Verkið er framhald af öðru myndlsitarverki sem var líka gangstéttarhellur, staðinn fyrir að hafa beinar hellur þá taka við mismunandi lagaðar hellur og útkoman verðu malerísk og ljóðræn. líkt og málverkin mín sem ég geri. Verkið er líka í sambandi við áhorfandann sem notar gangstéttinar í eða úrskólanum.
Samsýning nemenda í gjörningakúrs í Listaháskóla Íslands. Nýlistasafnið. 2009
Verkið byggðist á því að ég ætlaði að vera eins mikið fyrir áhorfendum og ég gat, ég ætlaði líka að vera eins pirrandi og ég gat, með til dæmis að hengja upp blautan þvott fyrir ofan sýningargesti. Verkið var hugsað sem tímalína þar sem ég raðaði hlutum ofan á sillu fyrir ofan sýningargestina. Á leiðinni notaði ég stillans sem tók mikið pláss í rýminu, oft þurftu gestir að færa sig svo ég gæti komist framhjá.
Verkið stóð yfir þann tíma sem opninin átti sér stað og það eina sem eftir lifir af þessum gjörningi eru ljósmyndir af honum.















Brak hljómplötur
Kimi Records








